Samstarf og viðburðir

Innlent samstarf

Starf FA grundvallast á samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, menntakerfið, stéttarfélög, fagfélög, fyrirtæki og stofnanir. FA er í samstarfi við 14 viðurkenndar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar um land allt. Fjármögnun til þeirra kemur úr Fræðslusjóði með áherslu á raunfærnimat, námskrár FA og ráðgjöf. Fræðslusjóður úthlutar samkvæmt eigin samþykktum, skilmálum og úthlutunarreglum. Að auki starfar FA með fjölbreyttum hópi sérfræðinga hérlendis og í Evrópu í gegnum sértæk verkefni innan fullorðinsfræðslu og fjölbreytts tengslanets.

Helstu samstarfsaðilar á árinu

  • Aðilar vinnumarkaðarins
  • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
  • Mennta- og barnamálaráðuneytið
  • Menningar,- nýsköpunar og háskólaráðuneytið
  • Atvinnuvegaráðuneytið
  • Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar
  • Framhaldsskólar
  • Háskólar
  • Fræðslu- og starfsmenntasjóðir
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Rannís
  • Vinnumálastofnun
  • VIRK starfsendurhæfingarsjóður
  • Fjölmennt
  • Heilbrigðisráðuneytið
  • Símennt
  • Leikn
  • Félag náms- og starfsráðgjafa
  • Norræna ráðherranefndin
  • Norrænt samstarf um símenntun- (NLL)
  • Miðstöð fagháskóla í Svíþjóð (Myh)
  • Miðstöð menntamála í Svíþjóð
  • Miðstöð fyrir færniþróun í umönnunargeiranum í Svíþjóð
  • Miðstöð fullorðinsfræðslu í Osló
  • Verslunarráðið í Svíþjóð
Samstarf mynd 1
Samstarf mynd 2
Samstarf mynd 3

Erlent samstarf

NLL-Norrænt samstarf um símenntun

NLL er ætlað að hvetja til samtals og samstarfs á milli ólíkra tengslaneta, koma á nýjum netum og efla framlag þeirra til norræns samstarfs.

Þann 1. janúar 2025 breytti NVL (Norrænt net um nám fullorðinna) nafni sínu í NLL (Norrænt samstarf um símenntun). Nafnabreytingin fól jafnframt í sér að NLL tók upp nýtt merki og lénið nll.org í stað nvl.org. Breytingin fól í sér endurskipulagningu starfseminnar en áfram er lögð áhersla á norrænt samstarf á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu.

Fulltrúar FA og fleiri hagaðila á Íslandi tók þátt í fjölbreyttum netum á vegum NLL og miðluðu þekkingu um nám fullorðinna á norrænum vettvangi. Efninu var jafnframt miðlað á vettvangi framhaldsfræðslunnar og í Gátt-veftímariti um nám fullorðinna.

Markmiðum NLL á árinu var skipt upp í þrjá áfanga:

  • Miðlun niðurstaðna frá starfstímabili NVL sem lauk 2024
  • Samráð og samtal við hagaðila vegna stofnunar nýrra tengslaneta og aðgerða
  • Kynningarfundir fyrir hagaðila og verkefni sem styðja við framkvæmd samstarfsáætlana Norrænu ráðherranefndarinnar.

Vegna áherslubreytinga við yfirfærslu NVL í NLL einkenndist árið af samtali við hagaðila innan fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum. Áfram voru þó starfandi net enda hefur það reynst vænlegt á norrænum vettvangi.

Starfandi net á árinu voru sjö talsins. Þau eru:

  1. Raunfærnimat
  2. Ráðgjöf fullorðinna
  3. Alfaráðið
  4. Menntun í fangelsum
  5. Færniþróun í atvinnulífinu með áherslu á færniþróun í heilbrigðisþjónustu
  6. Net um stafræna færni með áherslu á innflytjendur
  7. NEET - net um ungmenni sem ekki stunda nám, atvinnu eða starfsþjálfun í Færeyjum, Álandseyjum og Grænlandi
Norrænt samstarf um símenntun

Helstu afurðir NLL á árinu voru:

  • Stefnuplagg fyrir ákvarðanatökur um örvottanir og um nám til sjálfbærni
  • Greinasafn um PIAAC
  • Hlaðvarp um gervigreind og sjálfbærni
  • Vinnustofur, myndbönd og vefstofur í tengslum við formennsku Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni
  • Spjallmenni settu upp nýju heimasíðuna nll.org

Starfið á Íslandi:

  • Heimsóknir FA og NLL til símenntunarmiðstöðva
  • Hagaðilafundur um málefni ráðgjafar fyrir fullorðna á Norðurlöndum, var haldinn með íslenskum fulltrúum. Áhersluþættir ráðgjafar fyrir næstu ár ræddir.
  • Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins með áherslu á stöðu innflytjenda í námi.
  • Greinum og viðburðum miðlað reglulega. Þýðingar og dreifing á tveimur fréttum frá Íslandi á mánuði.

Tungumálastuðningur á vinnustað – verkefni í undirbúningi

Á árinu voru haldnir fundir með norskum og sænskum sérfræðingum sem vinna með hugmyndafræði tungumálafulltrúa á vinnustað (s. Språkombud) innan fullorðinsfræðslunnar í sínum löndum. Þau starfa hjá Miðstöð fyrir færniþróun í umönnunargeiranum í Svíþjóð og Miðstöð fullorðinsfræðslu í Osló. Um er að ræða vísi að norrænu samstarfi til að þróa, samræma og varða gæði tungumálastuðnings á vinnustað. Að umræðunni komu einnig fulltrúar frá Mími og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum sem hafa mikla reynslu af því að þjónusta innflytjendur og vinna að tungumálanámi í samstarfi við atvinnulífið.

Sérfræðingur frá Miðstöð færniþróunar í umönnunargeiranum í Svíþjóð hélt jafnframt fyrirlestur á ársfundi FA um þróun og fyrirkomulag tungumálastuðnings á vinnustað sem vakti mikla eftirtekt áheyrenda.

Viðburðir á árinu

FA hafði umsjón með þremur viðburðum á árinu. Tveir þeirra eru fastir liðir; haustfundur ráðgjafar og ársfundur FA. Að auki var skipulögð vettvangsheimsókn til að rýna í fullorðinsfræðslukerfið á Írlandi. Þessum viðburðum er lýst lauslega hér á eftir í tímaröð:

Heimsókn til Írlands (Erasmus+ KA1 styrkur). Fimm starfsmenn FA fóru til Írlands á árinu til að kynna sér uppbyggingu og skipulag fullorðinsfræðslukerfisins þar í landi. Heimsóttar voru fjórar stofnanir sem starfa á ólíkum sviðum framhaldsfræðslunnar, allt frá framkvæmd og beinum samskiptum við markhópinn, stefnumótun, greiningum, fjármögnun og samskiptum við stjórnvöld.

Samráðsfundur um ráðgjöf á vettvangi framhaldsfræðslunnar í samstarfi við NLL (haustfundur ráðgjafar). Áhersla fundarins var á fræðslu sem valin var út frá niðurstöðum fræðslugreiningar sem FA gerði á meðal ráðgjafa fræðslu- og símenntunarmiðstöðva víðsvegar um landið í byrjun árs, auk samtals um þróun og gæðamál. Sérfræðingar í tæknilegum lausnum fjallaði um nýtingu gervigreindar og stafrænna lausna í námi og ráðgjöf og virkjaði þátttakendur í hópavinnu. Sérfræðingur frá Landsskrifstofu menntamála í Svíþjóð fjallaði um áherslur, leiðir og verkfæri í ráðgjöf og sérfræðingur frá Miðstöð háskóla og færni (HK-dir) í Noregi kynnti og hélt vinnustofu um nýtingu gæðaramma í ráðgjöf. Að lokum miðluðu ráðgjafar gagnlegum verkfærum sín á milli.

Ársfundur FA í samstarfi við NLL undir yfirskriftinni Tengjum saman – Fjölbreytileiki, lærdómur, vöxtur. Áhersla var á að fara yfir þátttöku fólks með erlendan ríkisborgararétt í námi á vettvangi framhaldsfræðslunnar og skoða íslenskunám. Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra opnaði fundinn þar sem hann lagði áherslu á að innflytjendur væru ekki einn hópur og því þurfi að vera til staðar bæði formlegar og óformlegar leiðir til íslenskunáms. Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri FA og Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA fóru yfir það fjármagn sem fer í þennan málaflokk og kölluðu eftir yfirsýn og stefnu. Olga Orrit, sérfræðingur hjá Miðstöð í færniþróun í Svíþjóð sagði frá farsælu verkefni í Svíþjóð þar sem starfsfólk er þjálfað sem tungumálafulltrúar á vinnustað.

Tvö pallborð voru á fundinum. Í því fyrra ræddu Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA um stefnu, umgjörð og aðgengi innflytjenda að íslenskunámi og jöfnum tækifærum til náms.

Í seinna pallborðinu var rætt um íslenskufærni á vinnustað, tækifæri og áskoranir. Þar fóru Wendill Galan Viejo, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á menntadeild Landspítalans, Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri starfsþróunar og starfsumhverfis hjá Reykjavíkurborg, Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs-sviðs hjá Hornsteini og Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hilton Reykjavik Nordica yfir stöðuna á sínum vinnustöðum.

Hápunkturinn var þegar fyrirmyndir í námi fullorðinna sögðu frá reynslu sinni af verkfærum framhaldsfræðslunnar, en það voru þær Honeyly Abrequino Limbaga frá Mími símenntun og Sunna Rae George frá Þekkingarneti Þingeyinga.

Fjölbreyttir samráðsfundir voru jafnframt haldnir með samstarfsaðilum á árinu; þjálfun fyrir matsaðila um aðferðafræði Fagbréfa atvinnulífsins; vinnustofur og námskeið fyrir fagaðila í raunfærnimati, ráðgjafa og verkefnastjóra á vettvangi framhaldsfræðslunnar. Markmiðið var að miðla reynslu, þjálfa, læra hvert af öðru og hvetja til umræðu um vettvanginn og markhóp framhaldsfræðslunnar.

Hápunktar ársins
Hápunktar ársins fyrri hlutiHápunktar ársins seinni hluti