Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) er verkfærasmiðja sem byggir á samstarfi og þjónustu á vettvangi framhalds- og fullorðinsfræðslu á íslenskum vinnumarkaði. Hlutverk FA er að veita fólki á vinnumarkaði, sem ekki hefur lokið námi frá framhaldsskóla, tækifæri til að styrkja stöðu sína í námi, starfi og samfélagi.
FA starfaði árið 2025 á grundvelli þjónustusamnings við mennta- og barnamálaráðuneytið um verkefni á sviði framhaldsfræðslu samkvæmt lögum nr. 27/2010. Málaflokkur framhaldsfræðslu færðist úr félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu yfir til mennta- og barnamálaráðuneytisins þann 15. mars, 2025. FA er í eigu SA, ASÍ, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga og byggir allt starf sitt á víðtækri samvinnu við hagsmunaaðila.
Helstu verkefni FA samkvæmt þjónustusamningi
- Greina hæfnikröfur starfa á vinnumarkaði.
- Vinna að þróun og viðurkenningu raunfærnimats í samstarfi við atvinnulíf og fræðsluaðila.
- Auka framboð á almennum og starfstengdum námskrám fyrir markhópinn í samvinnu við samstarfsaðila, menntakerfið og vinnumarkaðinn.
- Efla ráðgjöf til einstaklinga, sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi, til þess að styrkja stöðu þeirra í námi, starfi og samfélagi.
- Tryggja gæði í starfi fræðsluaðila með þróun og innleiðingu á gæðakerfi fyrir framhaldsfræðsluna.
- Taka þátt í innlendu og erlendu samstarfi þar sem hagsmunir atvinnulífs og markhópsins eru í fyrirrúmi.
- Miðla upplýsingum um árangur starfsins, nýjungar og þróun framhaldsfræðslu.
- Þróa aðferðir sem styðja við framkvæmd náms og nýtingu verkfæra.
- Móta verklag og undirbúa aðkomu nýrra hópa að framhaldsfræðslu og nýta samlegðaráhrif í starfi FA.
- Annast umsýslu Fræðslusjóðs og fjárreiður hans.
Frá árinu 2005 hefur FA hýst landstengilið Íslands í Norræna samstarfsnetinu um símenntun (NLL) með fjármagni frá Norrænu ráðherranefndinni. Jafnframt hefur FA frá 2017 hýst Hæfnisetur ferðaþjónustunnar sem vinnur samkvæmt þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneytið um uppbyggingu á hæfni starfsfólks í íslenskri ferðaþjónustu. Hæfnisetrið, Fræðslusjóður og NLL gefa út eigin ársskýrslur.
FA hélt úti tveimur vefjum auk fræ.is; hver um sig með skilgreind markmið og markhóp. Þeir eru: Gátt, veftímarit um fullorðinsfræðslu og hæfni.is vefur Hæfniseturs ferðalandsþjónustunnar, þar sem finna má fræðslu- og stuðningsefni fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu.



Verkfæri framhaldsfræðslunnar
FA þróar verkfæri fyrir framhaldsfræðsluna, fimmtu menntastoðina, í samstarfi við atvinnulífið, menntakerfið, stéttarfélög og fagfélög. Hæfniviðmið eru grunnur verkfæranna með tengingu við þrep íslenska hæfnirammans um menntun.
Verkfæri FA

Mannauður
Árið 2025 voru ársverk hjá FA 12,5 samanborið við 13,5 árið 2024. Í árslok störfuðu 15 starfsmenn í samtals 12,8 stöðugildum. Þar voru þrettán konur samtals í 10,8 stöðugildum og tveir karlmenn í tveimur stöðugildum.
Starfsemi FA byggist á fjölbreyttum verkefnastofnum sem gera ríkar kröfur til sérfræðiþekkingar, yfirsýnar og reynslu starfsfólks. Sérfræðingar FA sinna almennt fleiri en einum verkefnastofni, sem kallar á þverfaglega nálgun, gott samstarf og hæfni til að miðla þekkingu á milli verkefna. Áhersla er lögð á teymisvinnu innan hvers verkefnastofns þar sem styrkleikar starfsfólks eru nýttir markvisst og sameiginleg þekking lögð til grundvallar þróun og framkvæmd verkefna.
Mannauður FA er ein af lykilforsendum þess að félagið geti sinnt hlutverki svo á vettvangi framhaldsfræðslunnar. Á árinu voru reglulega lagðar fyrir starfsánægjukannanir sem liður í því að fylgjast með líðan, starfsumhverfi og viðhorfum starfsfólks. Jafnframt var lögð áhersla á faglega þróun með þátttöku starfsfólks í námskeiðum og öðrum verkefnum sem tengdust sérsviðum þess eða styrktu það faglega með öðrum hætti.
Erlent samstarf FA gegnir einnig mikilvægu hlutverki í símenntun starfsfólks og faglegri þróun félagsins. Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi veitir aðgang að nýrri þekkingu, aðferðum og sjónarhornum sem nýtast bæði beint og óbeint í starfsemi FA. Slíkt samstarf er jafnframt mikilvægur hvati að nýsköpun og áframhaldandi þróun á vettvangi framhaldsfræðslunnar.
Rekstur
Rekstraráætlun 2025 gerði ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í árslok og gekk sú áætlun eftir. Niðurstaða ársins var hagnaður að fjárhæð 4,6 milljónir og er hún í samræmi við áætlanir. Þar vegur þyngst aukning verkefnatekna frá fyrra ári, auk þess sem launakostnaður hefur nánast staðið í stað. Hefur því tekist að bæta eiginfjárstöðu félagsins verulega á síðustu árum. Rekstur FA byggist að stærstum hluta á þjónustusamningum við mennta- og barnamálaráðuneytið og atvinnuvegaráðuneytið.
Áfram verður unnið í samræmi við stefnu um aðhald og kostnaðarvitund. Jafnframt er mikilvægt að gæta jafnvægis í þeim efnum, þannig að aðhald í rekstri styðji við markmið félagsins án þess að draga úr gæðum starfseminnar eða möguleikum til áframhaldandi þróunar. Sá árangur sem náðst hefur byggist á sameiginlegu átaki starfsfólks og metnaðarfullu framlagi þess. Starfsfólk FA á því miklar þakkir skildar fyrir framlag sitt til eflingar félagsins, sem og fyrir jákvætt viðhorf, fagmennsku og gott viðmót í garð félagsins.
Líkt og áður er launakostnaður Hæfniseturs ferðaþjónustunar færður á FA og því hluti af rekstrar- og verkefnakostnaði FA.
| Rekstur | 2025 | 2024 | Breyting |
|---|---|---|---|
| Rekstrar- og fjáreignatekjur | 294.0 | 285.0 | 3,14% |
| Þ.a. framlag ríkisins | 159.9 | 156.6 | 2,1% |
| Þ.a. verkefna- og fjáreignatekjur | 134.1 | 128.4 | 4,4% |
| Rekstrar- og fjáreignagjöld | 289.4 | 278.9 | 3,8% |
| Þ.a. laun og launatengd gjöld | 142.5 | 144.8 | -1,6% |
| Þ.a. rekstrar- og verkefnakostnaður | 147.5 | 134.1 | 9,6% |
| Hagnaður (tap) ársins | 4.6 | 6.2 |
Upphæðir í milljónum króna.
Kynningarmál
FA miðlaði upplýsingum um starfsemi sína á vef FA (frae.is) og á samfélagsmiðlunum Facebook og LinkedIn. FA stóð að og tók þátt í fjölda smærri og stærri viðburða í samvinnu við samstarfs- og hagsmunaaðila, innlenda og erlenda. Einnig voru sendir út markpóstar og fréttatilkynningar á fjölmiðla þegar það á við.
Á árinu 2025 fékk vefur FA (frae.is) um 8.100 einstakar heimsóknir. Á vef FA er að finna margvíslegar upplýsingar um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, meðal annars um verkfæri framhaldsfræðslunnar, starfsemi FA, erlent samstarf og innlenda samstarfsaðila. Á mælaborði FA má nálgast tölfræði yfir árangur af starfinu frá upphafi eða frá árinu 2003. Sjá hér.
NÁM
FJÖLDI EINSTAKLINGA SEM LOKIÐ HAFA NÁMI
2003 - 2025
RAUNFÆRNIMAT
FJÖLDI ÞÁTTTAKENDA SEM LOKIÐ HAFA MATI
2007 - 2025
RÁÐGJÖF
FJÖLDI VIÐTALA
2006 - 2025



Veftímaritið GÁTT
Gáttinni er ætlað að miðla þekkingu og reynslu á sviði framhaldsfræðslu og námi fullorðinna. Með reglulegri birtingu greina stuðlar tímaritið að faglegri umræðu og aukinni vitund um mikilvægi símenntunar í síbreytilegu samfélagi.
Á árinu voru birtar átta greinar í Gátt eftir innlenda og erlenda höfunda sem fjalla um fjölbreytt viðfangsefni á sviði framhaldsfræðslu og námi fullorðinna. Umfjöllunarefnin spanna meðal annars starfstengt nám á vinnumarkaði, nýtingu gervigreindarverkfæra til að greina og efla almenna starfshæfni, gæðamál og fagmennsku innan fræðslukerfisins, auk fjölbreyttra aðgerða til að styrkja símenntun.

Greinar í Gátt 2025:
- Starfstengt nám á vinnumarkaði
- Gervigreindarverkfæri aðstoðar við að draga fram almenna starfshæfni
- Staðfestum fagmennsku og stuðlum að gæðum
- Yfir 20 aðgerðir til að efla símenntun
- Tungumálafulltrúi aðstoðar nýliða og styrkir vinnuumhverfið
- Tungumálakennsla í fyrirtækjum á Suðurnesjum
- Tungumál sem brú:
Íslenskunám á Landspítala í samstarfi við Mími-símenntun - Gefum íslensku séns
EQM/EQM+ gæðavottun
Gæðavottunin (EQM/EQM+) felur í sér viðurkennd gæðaviðmið fyrir fræðslu, ráðgjöf um nám og störf og raunfærnimat.
EQM/EQM+ gæðavottun fyrir fræðsluaðila í fullorðinsfræðslu og fræðsludeildir fyrirtækja og stofnana var fyrst tekin í notkun árið 2008. Þá var vottuninni einungis ætlað að ná utan um fræðslustarfið (EQM) en í dag nær hún einnig utan um raunfærnimat og náms- og starfsráðgjöf (EQM+).
Í lok árs 2025 voru 18 fræðsluaðilar og fyrirtæki með EQM-vottun. Fjórtán voru með EQM+ vottun og fjögur með EQM þar sem starfsemin snýst einvörðungu um fræðslu. Allir samstarfsaðilar FA, á vettvangi framhaldsfræðslunnar, eru með EQM+ gæðavottun. En ein forsenda þess að fræðsluaðilar fái framlög úr Fræðslusjóði er að þeir hafi fengið gæðavottun sbr. 7. gr. laga 27/2010 og 4. gr. reglugerðar 1163/2011 um framhaldsfræðslu.
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur boðið þeim sem starfa að framhaldsfræðslu, upp á EQM og EQM+ gæðakerfið, sem sérstaklega er sniðið að þeirra þörfum, en EQM/EQM+ er hannað til að mæta síauknum kröfum um gagnsemi; gegnsæi í framkvæmd, skjölun og sameiginleg gæðaviðmið fyrir aðila utan hins formlega skólakerfis.
FA heldur utan um heildarferli vegna gæðavottunar viðurkenndra fræðsluaðila en gerir samning við fyrirtæki til að sjá um úttekt í samræmi við þá staðla sem í gildi eru hverju sinni. Úttekt hjá fræðsluaðilum fer fram á þriggja ára fresti en milli þess skila fræðsluaðilar sjálfsmatsskýrslu til FA.
EQM/EQM+ tekur mið af:
- gæðum þjónustunnar sem veitt er
- innri gæðastjórnun og verklagsreglum
- hvernig núverandi starfshættir samræmast viðurkenndum gæðaviðmiðum.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar er samstarfsverkefni aðila vinnumarkaðarins, fræðsluaðila og stjórnvalda um heildstæðar lausnir til að auka gæði, hæfni og fagmennsku starfsfólks í ferðaþjónustu á Íslandi. Hæfnisetrið var stofnað árið 2017 og afmarkast starfsemin af þjónustusamningi við atvinnuvegaráðuneytið (ATRN). Hæfnisetrið vinnur á forsendum ferðaþjónustunnar og á í samstarfi og samtali við atvinnulífið, ferðaþjónustufyrirtæki, fræðsluaðila, stjórnvöld og opinbera aðila. Hæfnisetrið heldur úti vef undir hæfni.is.
Fræðslusjóður
| Framkvæmd | 2025 | 2024 |
|---|---|---|
| Vottaðar námskrár | 701.5 | 769.5 |
| Náms- og starfsráðgjöf | 149.1 | 151.7 |
| Raunfærnimat | 125.4 | 137.2 |
| Nýsköpunar- og þróunarstyrkir | 38.3 | 35.1 |
| Samtals | 1.014.3 | 1.093.5 |
Upphæðir í milljónum króna.
Hlutverk Fræðslusjóðs er að stuðla að viðeigandi námstækifærum fyrir einstaklinga með stutta formlega skólagöngu. Jafnframt er það hlutverk sjóðsins að taka þátt í að skapa skilyrði fyrir því að einstaklingar geti nýtt sér slík námstækifæri. Þetta gerir sjóðurinn kleift með því að veita framlög til fjögurra skilgreindra verkefnaflokka; vottaðra námskráa, náms- og starfsráðgjafar, raunfærnimats og nýsköpunar og þróunar.
Mennta- og barnamálaráðuneytið skipar stjórn Fræðslusjóðs til fjögurra ára í senn og ber stjórnin ábyrgð á öllum afgreiðslum sjóðsins. Skipunartími núverandi stjórnar er fram til ársins 2027. FA sér um daglega umsýslu Fræðslusjóðs samkvæmt þjónustusamningi FA við ráðuneytið, þar á meðal bókhald, samskipti og samningagerð við þá sem fá styrki úr sjóðnum. Framlög til Fræðslusjóðs eru ákveðin í fjárlögum hvers árs. Á árinu úthlutaði Fræðslusjóður rúmlega 1.093,5 milljónum í fjóra verkefnaflokka.
Frekari upplýsingar um stjórn, úthlutanir, nýtingu fjármagns og árangur af starfsemi Fræðslusjóðs er að finna í ársskýrslu hans og á vef FA.
Árangur starfsins á vettvangi framhaldsfræðslunnar
0
Ráðgjöf um nám og störf 2025
Fjöldi viðtala með endurkomum
Meðalaldur 35,5 ár
167.262 viðtöl frá 2006
Greitt af Fræðslusjóði 99,8%
Greitt af öðrum 0,2%
0
Vottað nám 2025
Fjöldi einstaklinga sem lauk námi
í námskrám og námsleiðum FA
Meðalaldur 36,5 ár
53.724 viðtöl frá 2003
Greitt af Fræðslusjóði 98,4%
Greitt af öðrum 1,6%
0
Raunfærnimat 2025
Fjöldi einstaklinga í raunfærnimati
Meðalaldur 35,7 ár
9.096 viðtöl frá 2007
Greitt af Fræðslusjóði 92%
Greitt af öðrum 8%
Árið 2025 einkenndist starfsemi á vettvangi framhaldsfræðslunnar af breytilegri nýtingu verkfæra eftir þörfum markhópsins. Þátttaka í námi jókst um u.þ.b. 9% frá 2024, á meðan þátttaka í raunfærnimati dróst saman um u.þ.b. 4% og ráðgjöf um u.þ.b. 2%. Þessi þróun bendir til þess að einstaklingar leiti í ólíkar leiðir milli ára eftir aðstæðum, markmiðum og stöðu á vinnumarkaði. Jafnframt lækkaði meðalaldur í öllum flokkum milli 2024 og 2025, sem gefur til kynna breytingu á samsetningu þátttakenda og mismunandi aðsókn í verkfærin á milli ára. Fjármagn Fræðslusjóðs var fullnýtt árið 2025. Sú stefnumótandi ákvörðun að opna á tilfærslu fjár milli úthlutunarflokkanna þriggja, ráðgjafar, náms og raunfærnimats styrkir sveigjanleika kerfisins og stuðlar að því að fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar geti forgangsraðað og aðlagað þjónustu að þörfum og aðstæðum á hverju svæði.